Nokia 6730 classic - Fjarstillingar

background image

Fjarstillingar

Veldu >

Stillingar

>

Stjórnandi tækis

.

Umsýsla gagna

© 2009 Nokia. Öll réttindi áskilin.

55

background image

Með stjórnanda tækis er hægt að stjórna stillingum, gögnum

og hugbúnaði í tækinu úr fjarlægð.
Þú getur tengst miðlara og fengið sendar stillingar fyrir tækið

þitt. Þú getur fengið miðlarasnið og mismunandi stillingar

frá þjónustuveitunni þinni eða upplýsingadeild. Stillingarnar

kunna að innihalda tengistillingar og aðrar stillingar fyrir

mismunandi forrit í tækinu. Mismunandi getur verið hvaða

valkostir eru í boði.
Fjarstillingartengingin er venjulega ræst af miðlaranum

þegar uppfæra þarf stillingar tækisins.
Til að búa til nýtt miðlarasnið skaltu velja

Valkostir

>

Miðlarasnið

>

Valkostir

>

Nýtt miðlarasnið

.

Þú færð e.t.v. þessar stillingar frá þjónustuveitanda þínum í

stillingarboðum. Ef ekki skaltu skilgreina eftirfarandi:

Nafn miðlara

— Færðu inn heiti stillingamiðlarans.

Auðkenn.nr. netþjóns

— Færðu inn auðkenni

stillingamiðlarans.

Lykilorð miðlara

— Sláðu inn lykilorð til að miðlarinn

beri kennsl á tækið þitt.

Gerð tengingar

— Veldu tegund tengingar.

Aðgangsstaður

— Veldu aðgangsstað sem nota á með

tengingunni, eða búðu til nýjan aðgangsstað. Þú getur

einnig valið að beðið sé um aðgangsstað í hvert sinn sem

þú tengist. Þessi stilling er aðeins í boði ef þú hefur valið

Internet

sem gerð flutningsmáta.

Heimaveffang

— Færðu inn veffang stillingamiðlarans.

Gátt

— Færðu inn gáttarnúmer miðlarans.

Notandanafn

og

Lykilorð

— Sláðu inn notandanafnið og

aðgangsorðið að stillingamiðlaranum.

Leyfa stillingar

— Veldu

til að leyfa miðlaranum að

hefja stillingalotu.

Samþ. allar sjálfkrafa

— Veldu

ef þú vilt ekki að

miðlarinn biðji þig um staðfestingu þegar hann hefur

stillingalotu.

Sannvottun símkerfis

— Veldu hvort nota á http-

sannvottun.

Notandanafn símkerfis

og

Lykilorð símkerfis

— Sláðu

inn notandanafn og aðgangsorð fyrir http-sannvottun.

Þessi stilling er aðeins í boði ef þú hefur valið að nota

Sannvottun símkerfis

.

Til að tengjast miðlaranum og taka við stillingum fyrir tækið

þitt velurðu

Valkostir

>

Hefja stillingu

.

Til að skoða stillingaskrá valins sniðs velurðu

Valkostir

>

Skoða notk.skrá

.

Til að uppfæra hugbúnað tækisins með ljósvakaboðum

velurðu

Valkostir

>

Stillingar

. Uppfærslan eyðir ekki

stillingum þínum. Þegar þú móttekur uppfærslupakkann í

tækinu skaltu fylgja leiðbeiningunum á skjánum. Tækið er

endurræst þegar uppsetningunni er lokið. Það að hlaða niður

hugbúnaði getur falið í sér stórar gagnasendingar um

farsímakerfi þjónustuveitu. Upplýsingar um

gagnaflutningsgjöld fást hjá þjónustuveitum. Gættu að því

að rafhlaða tækisins hafi næga hleðslu eða tengdu

hleðslutækið áður en uppfærslan er ræst.