
Umsýsla gagna
© 2009 Nokia. Öll réttindi áskilin.
53

Mikilvægt: Aðeins skal setja upp og nota forrit og
annan hugbúnað frá traustum aðilum, t.d. forrit með
Symbian Signed eða forrit sem hafa verið prófuð með Java
Verified.
Fyrir uppsetningu geturðu gert eftirfarandi:
● Til að skoða gerð forritsins, útgáfunúmer og seljanda eða
framleiðanda forritsins skaltu velja
Valkostir
>
Skoða
upplýsingar
.
Til að birta upplýsingar um öryggisvottorð forritsins skaltu
velja
Upplýsingar:
>
Vottorð:
>
Skoða upplýsingar
.
● Ef sett er upp skrá með uppfærslu eða lagfæringu á forriti
er aðeins hægt að endurheimta upphaflega forritið ef fyrir
hendi er upphaflega uppsetningarskráin eða fullkomið
afrit af hugbúnaðarpakkanum sem var fjarlægður. Til að
endurheimta upphaflega forritið skaltu fyrst fjarlægja
forritið og setja það svo upp aftur með því að nota
upphaflegu uppsetningarskrána eða öryggisafritið.
Nauðsynlegt er að hafa JAR-skrá til að setja upp Java-forrit.
Ef skrána vantar getur tækið beðið þig um að hlaða henni
niður. Ef enginn aðgangsstaður er tilgreindur fyrir forritið
biður tækið þig um að velja aðgangsstað. Þegar .JAR-
skráin er sótt getur notandinn þurft að færa inn
notandanafn og lykilorð til að komast á miðlarann. Þú
getur fengið notandanafn og lykilorð hjá söluaðila eða
framleiðanda forritsins.
Svona seturðu upp hugbúnað eða forrit:
1. Veldu >
Forrit
>
Uppsetn.
>
Stj. forrita
til að finna
uppsetningarskrá. Að öðrum kosti skaltu leita að
uppsetningarskrám með Skráarstjóra eða velja
Skilaboð
>
Innhólf
og opna skilaboð sem innihalda
uppsetningarskrá.
2. Í Stjórnun forrita velurðu
Valkostir
>
Setja upp
. Í öðrum
forritum velurðu uppsetningarskrána til að hefja
uppsetninguna.
Meðan á uppsetningu stendur birtir tækið upplýsingar um
stöðu uppsetningarinnar. Ef þú setur upp forrit án
rafrænnar undirskriftar eða vottorðs birtir tækið
viðvörun. Þú skalt aðeins halda áfram að setja upp forritið
ef þú ert viss um uppruna þess og innihald.
Til að ræsa uppsett forrit finnurðu það í valmyndinni og velur
það.
Til að sjá hvaða hugbúnaðarpakkar hafa verið settir upp eða
fjarlægðir og hvenær það var gert skaltu velja
Valkostir
>
Skoða notk.skrá
.
Mikilvægt: Tækið styður aðeins eitt vírusvarnarforrit
í einu. Notkun fleiri en eins vírusvarnarforrits getur haft áhrif
á afkastagetu og virkni tækisins, eða valdið því að það virki
ekki.
Uppsetningarskrár (.sis, .sisx) eru áfram í minni tækisins eftir
að forrit þeirra hafa verið sett upp á samhæfu minniskorti.
Skrárnar geta tekið mikið minni og valdið því að ekki sé hægt
að vista aðrar skrár. Ef .sis-skráin hefur verið send sem
viðhengi í skilaboðum skal eyða skilaboðunum úr innhólfinu.