Nokia 6730 classic - Samstilling

background image

Samstilling

Veldu >

Stillingar

>

Tenging

>

Samstilling

.

Með samstillingarforritinu er hægt að samstilla minnismiða,

dagbókarfærslur, texta- og margmiðlunarskilaboð,

bókamerki eða tengiliði við ýmis samhæf forrit í samhæfri

tölvu eða á internetinu.

Þú getur fengið samsstillingar sendar í sérstökum

skilaboðum frá þjónustuveitunni.
Samstillingarsnið inniheldur nauðsynlegar stillingar til að

samstilla upplýsingar.
Þegar samstillingarforritið er opnað birtist sjálfgefna eða

síðast notaða samstillingarsniðið. Til að breyta sniðinu skaltu

fletta að hlutnum sem á að samstilla og velja

Merkja

til að

setja hann inn í sniðið eða

Afmerkja

til að hafa hann

óbreyttan.
Til að stjórna samstillingarsniðum velurðu

Valkostir

og

viðeigandi valkost.
Til að samstilla gögn velurðu

Valkostir

>

Samstilla

. Hætt er

við samstillingu áður en henni er lokið með því að velja

Hætta við

.

20. Græn ráð

Hér eru ábendingar sem hjálpa þér að stuðla að

verndun umhverfisins.

Orkusparnaður

Þegar rafhlaðan er fullhlaðin og hleðslutækið tekið úr

sambandi við tækið skaltu muna að taka hleðslu tækið úr

sambandi við innstunguna.

Þú þarft ekki að hlaða rafhlöðuna eins oft ef þú gerir

eftirfarandi:
● Lokaðu og gerðu óvirk forrit, þjónustu og tengingar þegar

þær eru ekki í notkun.

● Minnkaðu birtustig skjásins.
● Stilltu tækið þannig að það fari í orkusparnaðarstillingu

eftir lágmarkstíma af aðgerðaleysi, ef tækið bíður upp á

það.