
Um Bluetooth
Bluetooth-tækni gefur notendum kost á þráðlausri tengingu
á milli tveggja rafeindatækja sem eru í innan við 10 metra
(33 feta) fjarlægð frá hvort öðru. Hægt er að nota Bluetooth-
tengingu til að senda myndir, hreyfimyndir, texta, nafnspjöld,
minnismiða í dagbókum og til að tengjast við önnur tæki sem
nota Bluetooth-tækni.
Þar sem tæki sem nota Bluetooth-tækni hafa samskipti með
útvarpsbylgjum þurfa tækið þitt og tækið sem það er tengt
við ekki að vera staðsett beint á móti hvort öðru. Tækin tvö
þurfa einungis að vera í innan við 10 metra fjarlægð frá hvort
öðru. Truflanir geta þó orðið á tengingunni vegna veggja eða
annarra rafeindatækja.
Hægt er að hafa fleiri en eina Bluetooth-tengingu virka í einu.
Til dæmis er hægt að flytja skrár úr tækinu þó að það sé tengt
við höfuðtól.
Þetta tæki er samhæft við Bluetooth Specification 2.0 + EDR
sem styður eftirfarandi snið: Advanced Audio Distribution,
Audio/Video Remote Control, Basic Imaging, Basic Printing,
Device ID, Dial-up Networking, File Transfer, Generic Audio/
Video Distribution, Generic Access, Generic Object Exchange,
Handsfree, (Human Interface Device) Headset, Object Push,
Phone Book Access, Serial Port og SIM Access. Til að tryggja
samvirkni milli annarra tækja sem styðja Bluetooth-tækni
skal nota aukabúnað sem eru viðurkenndir af Nokia fyrir
þessa tegund. Leita skal upplýsinga hjá framleiðendum
annarra tækja um samhæfi þeirra við þetta tæki.
Þau forrit sem notast við Bluetooth ganga á rafhlöðu símans
og draga úr endingu hennar.