SIM-korti og rafhlöðu komið fyrir
1. Til að taka bakhliðina af tækinu ýtirðu á hana með
fingrunum, rennir henni til svo að hún opnist og tekur
hana svo af.
2. Renndu SIM-kortinu í festinguna. Nauðsynlegt er að
fjarlægja rafhlöðuna áður en SIM-kort er sett í tækið.
Gakktu úr skugga um að snertiflötur kortsins snúi niður
og að skáhorn þess snúi frá raufinni.
3. Rafhlöðunni er komið fyrir.
4. Settu bakhlið símans aftur á sinn stað.