Nokia 6730 classic - Hleðsla rafhlöðunnar

background image

Hleðsla rafhlöðunnar

Rafhlaðan var hlaðin að hluta í verksmiðjunni. Ef tækið sýnir

að lítil hleðsla sé eftir skaltu gera eftirfarandi.
1. Stingdu hleðslutækinu í samband við innstungu.
2. Tengdu hleðslutækið við tækið.

3. Þegar rafhlaðan er fullhlaðin skaltu fyrst taka

hleðslutækið úr sambandi við tækið og síðan úr

innstungunni.

Þú þarft ekki að hlaða rafhlöðuna í tiltekinn tíma og þú getur

notað tækið á meðan það er í hleðslu. Ef rafhlaðan er alveg

tóm geta liðið nokkrar mínútur þar til hleðsluvísirinn birtist

á skjánum eða þar til hægt er að hringja.

Ábending: Ef þú átt gömul samhæf Nokia-hleðslutæki

geturðu notað þau með tækinu með því að festa CA-44-

millistykkið við gamla hleðslutækið. Hægt er að fá

millistykkið sem aukabúnað.

USB-hleðsla

Hægt er að nota USB-hleðslu ef rafmagnsinnstunga er ekki til

staðar. Það tekur lengri tíma að hlaða tækið með USB-

gagnasnúrunni. Mjög misjafnt er hvernig USB-hleðsla virkar.

Stundum líður langur tími þar til hleðslan hefst og tækið

verður starfhæft.
Einnig er hægt að flytja gögn um USB-gagnasnúruna á meðan

tækið er hlaðið.
1. Tengdu samhæft USB-tæki við tækið þitt með samhæfri

USB-gagnasnúru.
Það fer eftir tækinu sem notað er til hleðslu hve langur

tími líður þar til hleðslan hefst.

2. Ef kveikt er á tækinu er hægt að velja úr USB-stillingum á

skjá tækisins.

Tækið tekið í notkun

© 2009 Nokia. Öll réttindi áskilin.

10