
Skilaboð
.
Í Skilaboðum (sérþjónusta), geturðu sent og tekið við texta-,
margmiðlunar- og hljóðskilaboðum, sem og
tölvupóstskeytum. Einnig er hægt að taka við
vefþjónustuboðum, skilaboðum frá endurvarpa, sérstökum
skilaboðum sem innihalda gögn, og senda þjónustuskipanir.
Mismunandi getur verið hvaða þjónusta eru í boði.
Þjónustuveitan gefur nánari upplýsingar.
Til að geta sent og tekið á móti skilaboðum gæti þurft að gera
eftirfarandi:
● Setja gilt SIM-kort í tækið og vera innan þjónustusvæðis.
● Ganga úr skugga um að símkerfið styðji þá gerð skilaboða
sem á að senda og að opnað hafi verið fyrir þau á SIM-
kortinu.
● Færa inn stillingar fyrir internetaðgangsstað í tækinu.
● Færa inn stillingar fyrir tölvupóst í tækinu.
● Tilgreina stillingar textaskilaboða í tækinu.
● Tilgreina stillingar textaskilaboða á tækinu.
Verið getur að tækið beri kennsl á söluaðila SIM-kortsins og
færi sjálfkrafa inn ákveðnar stillingar fyrir skilaboð. Ef ekki
þarftu hugsanlega að færa stillingarnar inn handvirkt, eða
hafa samband við þjónustuveituna til að fá stillingarnar.
Útlit myndskilaboða getur verið breytilegt eftir
viðtökutækinu.
Aðeins tæki með samhæfar aðgerðir geta tekið á móti og birt
margmiðlunarskilaboð. Útlit skilaboða getur verið breytilegt
eftir móttökutækinu.