Nokia 6730 classic - Um tækið

background image

Um tækið

Þráðlausa tækið sem lýst er í þessari handbók er samþykkt til

notkunar í (E)GSM 850, 900, 1800 og 1900 símkerfi, og UMTS

900 og 2100 HSDPA og HSUPA símkerfi. Þjónustuveitan gefur

nánari upplýsingar um símkerfi.
Við notkun þessa tækis skal hlíta öllum lögum og virða

staðbundnar venjur, einkalíf og lögmæt réttindi annarra,

þ.m.t. höfundarrétt. Höfundarréttarvörn getur komið í veg

fyrir að hægt sé að afrita, breyta eða flytja myndir, tónlist

(þ.m.t. hringitóna) og annað efni.
Tækið styður nokkrar mismunandi gerðir tenginga. Líkt og

gildir um tölvur hafa vírusar og annað skaðlegt efni áhrif á

tækið. Fara skal með gát við meðhöndlun skilaboða,

tengibeiðna, við vefskoðun og við niðurhal. Aðeins skal setja

upp og nota þjónustu og hugbúnað frá áreiðanlegum aðilum

sem bjóða upp á nægjanlega vörn gegn skaðlegum

hugbúnaði líkt og Symbian Signed hugbúnað eða hugbúnað

sem hefur staðist Java Verified™ prófun. Þú ættir að íhuga að

setja vírusvarnarhugbúnað og annan öryggishugbúnað upp

í tækinu og tölvum sem tengjast við það.
Tækið getur innihaldið bókamerki og tengla fyrir vefsíður

þriðju aðila. Einnig er hægt að skoða vefsíður þriðju aðila í

tækinu. Vefsíður þriðju aðila tengjast ekki Nokia og Nokia

© 2009 Nokia. Öll réttindi áskilin.

7

background image

hvorki hvetur til né tekur ábyrgð á þeim. Ef þú vilt heimsækja

slíkar síður skaltu beita öryggisráðstöfunum.

Viðvörun: Við notkun allra aðgerða í þessu tæki,

annarra en vekjara, þarf að vera kveikt á tækinu. Ekki skal

kveikja á tækinu þegar notkun þráðlausra tækja getur valdið

truflun eða hættu.
Taktu öryggisafrit eða haltu skrá yfir allar mikilvægar

upplýsingar sem geymdar eru í tækinu.
Þegar tækið er tengt öðru tæki skal lesa notendahandbók

þess vandlega, einkum upplýsingar um öryggi. Ekki má

tengja saman ósamhæf tæki.
Myndir í þessum bæklingi kunna að líta öðruvísi út en á skjá

tækisins.
Aðrar mikilvægar upplýsingar um tækið er að finna í

notendahandbókinni.